Um Ritvélina

Ritvélin er félag ritlistarnema við Háskóla Íslands. Félagið var stofnað á vormánuðum ársins 2009 af nemendum á fyrsta ári hins þá spánnýja ritlistarnáms.

Félagið er hugsað sem hvort tveggja í senn, miðstöð félagslífs ritlistarnema og stuðningsvettvangur nemanna til að koma sér og verkum sínum á framfæri.

Til að uppfylla fyrra markmiðið stendur Ritvélin fyrir fjölbreyttum viðburðum; vísindaferðum, skemmtunum og bjórkvöldum. Þá skipuleggur félagið m.a. upplestrarkvöld og ritsmiðjur sem þjóna báðum markmiðum i senn — hrista saman nemendur og hjálpa þeim einnig að þróa hæfileika sína á sviðum framkomu og skrifa. Þannig nýtist félagið sem mikilvægur stuðningur við það starf sem fram fer í kennslustofum.

Að lokum er einn megintilgangur félagsins að skapa grundvöll fyrir nemendur að birta eigin verk á auðveldan hátt. Því er stór áhersla lögð á að félagið standi fyrir útgáfu á hverju námsári. Bundið er í lög félagsins að gefa skuli út árlega safnrit með úrvali sagna ritlistarnema. Eitt slíkt hefur þegar verið gefið út, bókin Hestar eru tvö ár að gleyma, sem hefur að geyma sögur frá vetrinum 2008-2009. Aukinheldur er ætlunin að standa fyrir minni og sérhæfðari útgáfum til viðbótar. Þar má meðal annars nefna hugmyndir um ljóðaútgáfu og tímarit.

Í stuttu máli stendur Ritvélin fyrir hóflega blöndu af skemmtun og fagmennsku, eins og lífið sjálft. Ritvélin er lífið.

Stjórn Ritvélarinnar veturinn 2010 til 2011

  • Tumi Ferrer — Forseti
  • Esther Ýr Þorvaldsdóttir — Hagsmunafulltrúi nemenda
  • Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir — Gjaldkeri
  • Hertha Richardt Úlfarsdóttir — Ritari
  • Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson — Meðstjórnandi

Stjórn Ritvélarinnar veturinn 2009 til 2010

  • Alexander Dan Vilhjálmsson — Forseti
  • Esther Ýr Þorvaldsdóttir — Ritari
  • Hildur Knútsdóttir — Gjaldkeri
  • Ólafur Sindri Ólafsson — Meðstjórnandi
  • Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson — Nýnemafulltrúi

Tölvupóstfang félagsins er ritvelin@gmail.com.