Kæru listfengnu ritlistarnemar,
nú er komið að keppninni um nafn og hönnun á kápu bókarinnar. Kápan skal vera B5 að stærð (176 × 250) og þurfa keppendur að senda inn bæði framhlið og bakhlið. Stærð kjalar er enn óákveðin en sigurvegari keppninnar skal hanna hann þegar þar að kemur.
Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram á framhlið kápu:
- Nafn bókar
Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram á bahlið kápu:
- Nafn bókar
- Smásagna- og ljóðasafn eftir ritlistarnemendur Háskóla Íslands
- 40 orða texti um bók
Athugið að kápuhönnuðir geta einnig komið með hugmynd að nafni og þeir skulu ákveða letur eða aðra framsetningu á nafninu. Einnig ákveða þeir letur káputextans. Kápuhönnuðir þurfa ekki að skrifa textann en ágætt er að semja eitthvað til viðmiðunar. Ef kápuhönnuður fær góða hugmynd að texta gæti vel verið að hann verði notaður.
Ef einhverjir er með snilldar hugmynd að nafni og vilja ólmir koma hugmynd sinni á framfæri, geta notað kommentakerfið eða spjallið á ritvelin.org eða spjall.ritvelin.org til þess að kápuhönnuði sem vantar nafnahugmyndir geti unnið með þær. Í sameiningu ættum við að geta búið til frábæra bók.
Skilafrestur er til 30 júlí. Hugmyndum skal skilað á ritvelin@gmail.com.
Færslan er flokkuð sem Óflokkað og hægt er að fylgjast með umræðunni gegnum RSS 2.0.
Væri ekki betra að velja titil áður? Held að það sé auðveldara fyrir kápuhönnuði því þá eru þeir með ákveðið concept sem þarf ekki að krukka mikið í síðar meir.
Annars þá legg ég opinberlega fram hugmynd mína að titli, sem er: Tveggja truntna tal.
hvenær fáum við að vita hvaða sögur fá að vera með?
og tek undir með Alexander!
Höfundarnir gera uppreisn!
Gæti verið titill?
Þið fáið að öllum líkindum að vita það í næstu viku.
Mér finnst vanta meiri titlahugmyndir hér!
‘Vindlarnir hans Kastró’
Nokkrar tillögur að titlum:
Afleiðsluþankar
Brotnir kólfar
Pokatott og klofbumbur
Skúffubrestir
Málsgreinapolka
Orðgormastormur
pokatottið fær mitt atkvæði
Hvað með einhvern titill sem hljómar ekki eins og einkahúmor svo þetta virki professional?
Annars er ég ágætlega hrifin af því að hafa eitthvað hestaþema áfram í titlinum.
Tryppi eru tvö ár með typpi?
Jór!
Klár!
Hljómar ekki eins og einkahúmor? Ertað grínast? Það er nú aðeins og seint í rassinn gripið með það. Titill fyrstu bókar var hreinræktaður einkahúmor. Svo finnst mér afleit hugmynd að halda hestaþemanu, þrátt fyrir upphaflega uppástungu mína. Stöðnun er dauði.
Annars, fleiri titlahugmyndir:
Fésbókin / Snjáldurskinnan
Blekbyttublús
Skríbentasamba
Huglægt harðlífi
Dagskrá hálfsmánaðarins
Kleppsmatur
Erótískar vögguvísur
Mansalsmanga
Hristist fyrir notkun
“Nýjasta bók Einars Kárasonar”
Tilgerðarskrif
Sjálfhverft fólk
ÁBS og ég
já ég held það sé aafar erfitt að hafa þetta einkahúmorslaust.
tillögur:
Blaðsíður í bók
Ljúflingslöggan
Rónarnir hans Rúnars
Árbítur
Afarkostur
Hræringur
okbæ
Af tvennu illu kýs ég frekar húmor yfir tilgerð. Þó þetta sé sprell þá þýðir það ekki að titillinn sé slæmur eða ekki fagmannlegur. Hefur einhver hérna lesið íslenska bókatitla?
Titillinn verður að vera grípandi og kitla forvitni tilvonandi kaupanda. Ef við ætluðum að ‘virka professional’ (er bókin okkar það ekki hvorteðer?) þá myndum við hafa einhvern ógeðslega tilgerðarlegan titil sem kitlar bara ælu upp í kok. Hér eru nokkrar uppástungur að tilgerðarlegum titlum:
Draumsýnir
Horft í gegnum huluna
Þungi orðanna
Bakvið brúðuaugu
Sálarspeglar
Norland og Narcissus
Af því sem komið er finnst mér eftirfarandi flottast:
Málsgreinapolka
Blekbyttublús
Sjálfhverft fólk
eeeen ég held við þurfum að hittast í bjór og rífast svolítið um þetta.
Bjór! Það er besta hugmynd hingað til!
Hvenær eigum við að hittast í bjór?
Hér eru svo fleiri tillögur:
Jesús í brauðsneiðinni
Upptakari
Tröllskessufellingar
Uppköst (sá geðveikt fyndna myndasögu þar sem maður breytti ælu í trjágrein — þá var hann að gera uppkast að grein! LOL)
Mök sólanna
Rakir hugsjónakrikar
Árstíðanefrennsli
Mér finnst Hristist fyrir notkun besta tillagan held ég. Annars verður að ræða svona lagað yfir bjór…hvað er að okkur að halda að það finnist einhver niðurstaða á netspjalli? Hvar og hvenær?
…og já…skrifið undir á orkuaudlindir.is ef þið eruð ekki búin að því. Núna er betra en seinna.
Ég ætla reyndar ekki að skipta mér af útgáfunni, en bjór er ég ávallt til í. Ég skal líka slá þá sem koma með lélegar tillögur utan undir.
Bjór á morgun? Kl. 20? Á Danska? Eða Næsta?
Saur. Fótbolti þá. Og svo vinna. En ég verð með ykkur í anda.
Ég kýs Danska! Sjáumst þá?
Mér finnst Næsti skárri en Danski er líka fínn. Skella ímeil og ívent á línuna!
Það er kominn ímeill en enginn eventur.
Þið eruð svo kröfuhörð!
Event á leiðinni ef facebook hættir að vera tík og kynfæri Óla komast út úr hausnum mínum.
Neibb, það verður enginn eventur.
Það er synd og skömm því ég var í tvo daga að photoshoppa mynd fyrir eventinn
Kannski fáið þið 3 boð á þennan atburð á eftir.
Mér finnst „Norland og Narcissus“ LANGBESTI titillinn. Ef við veljum hann þá skal ég leyfa öllum að bjóða mér upp á bjór. ÖLLUM.
Annars get ég auðveldlega toppað tilgerðina:
Á vængjum óreiðunnar
Draumkenndar staðreyndir um himingeiminn
Að maka litum á myrkrið
Svaml í rakalausri tilveru
Kúkað á svan
Held samt að „Njóttu hverrar samloku á meðan þú getur“ sé málið.
Fyrst við erum öll í titlavímu:
Í nótt sarð ég Kládíus: á morgun verð ég blindur
Af nunnuklaustrum og pútnahúsum
Þegar ég varð ólétt
Hafið er skorpnuð broddmjólk í augntóft Búddha
Gefðu mér pening, gyðingur!
Og nú að tilgerðinni:
Fagurt er fley þanka minna
Uppgufun sála í Jemen
Píslarsögur óhlutbundinna
Morð handan orða
Hraðar tími! Hraðar!
Jólanótt í Júpíter er tvær ævir að borga sig.
Það er eitt að hafa titil sem einungis örfáir höfundar verksins skilja (þar af leiðandi verður hann einkahúmor) og annað að vera tilgerðarlegur.
Af þessu sem er komið finnst mér Uppköst vera best, en annars á Sjálhverft Fólk voða vel við okkur.
En annars, þá ætla ég að mæta í kvöld, en líður svona pínu kjánalega að mæta og tala um titilinn þar sem ég veit ekki enn hvort að sagan mín hafi verið samþykkt.
Ég er grínlaust til í Norland og Narcissus.
Alexander og Auðmagnið
Sjálfhverft fólk finnst mér vera mjög skemmtilegur tilitill. Hann fær mitt atkvæði!
P.s. hvernig er það með dómarana sem velja verk í útgáfuna, veit einhver hverjir þeir eru?
Án þess að Esther ætlaði sér þetta sem titil, finnst mér þetta klingja nokkuð vel:
„Neibb, það verður enginn eventur“
Kannski þurfum við líka bara að vera hreinskilin í titlinum:
Ungskáldagredda
Andans brundstíflugremja
Hóruhús braghendinga
Lesbíulýrík
Ángist áhrifa (takk Harold Bloom)
Gervipíka ritgöndulsins
ooooog ég er hættur.
Ég var í hnámeðferð í dag og verð að vera kyrr á meðan hnéð er að fixa sig. Njótið bjórsins og samverunnar og eins gott að þið finnið almennilegt nafn…eins gott. Bið bara að heilsa:)
hnémeðferð
Það eru álitsgjafar héðan og þaðan. Allt er undir dulnefni.
Sjálfhverft fólk finnst mér ekki góður titill eftir nokkra íhugun.
Simpansi misþyrmir froski
Hildur í Ævintýralandi
Tumískar hugsanir
Allt er undir dulnefni
Nei, Tumískar hvatir er betri titill.
Ég tók mér bessaleyfi og samdi titilljóð væntanlegrar ljóðabókar Sverris; Norland og Narkissus.
Verði þér að góðu, Sverrir!
Norland og Narkissus
Norland: Ef augu þín væru tjörn vildi ég drukkna þar.
Narkissus: Ég vildi drukkna aftur, ef augu þín væru tjörn.
Norland: …speglast…
Narkissus: …speglast…
Norland: …í augunum…
Narkissus: Í augum.
Norland: …er þetta hamingja?
Narkissus: Þetta er hamingja.
Erum alvarlega að spá í Uppköst. Hvernig undirtektir fær það?
Eftir mikla íhugun finnst mér eftirfarandi titill mjög áhrifaríkur:
Rautt límband
Það er hræðilegur titill.
Þetta er allt hræðilegir titlar og ömurlegar hugmyndir, ljóðið eftir Hildi er ömurlegt, við erum öll ömurleg og ég held við ættum að hætta við að gefa út þessa bók því að annars verður hún bara ömurleg.
Ömurleg með sónarmynd á kápunni.
Þú ert ömurlegur, Norland.