Útgáfa 2010

23.5.2010 kl. 20:15

Til hópsins sem mun búa til næstu bók Ritvélarinnar:

Margir hafa rætt við okkur í útgáfunefndinni um dómnefnd sem sem hefði það hlutverk að gera bókina að gæðagrip. Enginn úr útgáfunefndinni mun sitja í dómnefndinni. Allir hafa tækifæri til þess að fá sína sögu birta því dómnefndin mun aðeins skera út um hvort einhver verk séu ekki hæf til útgáfu. Ef allir leggja hart að sér og senda inn vel unnar lokaútgáfur sem sýna fram á mikinn metnað þarf dómnefndin ekkert að skipta sér að. Við vonumst til þess að þið getið lagt ykkur fram og hjálpað hvert öðru.

Rithringurinn mun koma saman næstkomandi þriðjudag (25.05.10). Þá munum við hittast á Háskólatorgi og hertaka hringborðin kl. 18:00. Mjög mikilvægt er að vera tilbúinn með athugasemdir um öll verkin í sínum hópi. Sögurnar skulið þið hafa útprentaðar og láta svo höfunda fá athugasemdir ykkar á pappír. Æskilegt er að prófarkalesa með stafsetningu, málfar og innihald í huga. Hóparnir eru eftirfarandi:

Hópur Tuma: Alexander, Hekla, Þorgerður Ösp og Vilhjálmur.

(Vilhjálmur mun ekki mæta í rithringinn og því þurfa ábendingar til hans að vera á rafrænu formi).

Hópur Estherar: Áslaug, Dagbjört og Sverrir, (Jón Bjarki).

Hópur Sigursteins: Bryndís, Hertha og Þorgerður Ólafsdóttir.

Hópur Gunnhildar Helgu: Bergþóra Einarsdóttir, Hildur og Trausti, (Hlín).

Hópur Höllu Míu: Birgir, Kristján og Stefanía, (Bergþóra S.).

Sögurnar voru sendar í tölvupósti.

Okkur þykir mjög leiðinlegt að þrír aðilar geti ekki verið með sökum seinagangs en ef um villu er að ræða verður viðkomandi að hafa samband við okkur sem fyrst og senda sitt verk á hópfélaga sína.

Við viljum einnig benda ykkur á að þið megið auðvitað lesa fleiri sögur ef ykkur langar. Öll aðstoð er vel þegin og mun hún bæta heildarmynd bókarinnar.

Á þriðjudaginn munum við einnig ræða um nafn á bókina og útlit kápunnar.

Ef þið eruð ekki með Word 2007 (getið ekki opnað .docx) þá bendum við ykkur á Open Office forritið sem þið getið halað niður hér: http://www.openoffice.org/

Þeir sem ekki hafa borgað félagsgjöld þurfa að gera það sem allra fyrst. Enginn sem ekki er meðlimur í nemendafélaginu fær verkið sitt birt í bókinni. Svona á að borga félagsgjöldin:

Félagsgjöld eru 1500 kr. Munið að senda líka kvittun á ritvelin@gmail.com.

Reikningur: 0338-26-460209

Kennitala: 460209-1020

Samantekt:

Til þess  að fá verkið birt þarf:

  • Að skrifa gott verk.
  • Að lesa yfir önnur verk.
  • Að mæta í rithring á HT þann 25.05.10.
  • Að notfæra sér athugasemdir félaga sinna til að betrumbæta verkið.
  • Að borga félagsgjöld.
  • Að senda meistarverkið í lokaprófarkalestur.

Færslan er flokkuð sem Óflokkað og hægt er að fylgjast með umræðunni gegnum RSS 2.0.

3 svör eru við færsluna “Útgáfa 2010”

Skrifaðu athugasemd