Færslur frá 4.2010

Ítrekun fyrir útgáfu

29.4.2010

Sælir rithöfundar.

Þar sem allir eru uppteknir í prófum ætlum að hafa aðeins þægilegra fyrirkomulag á hlutunum. Ef þið viljið vera með í útgáfunni þurfið þið að bara senda okkur email til að skuldbinda ykkur fyrir 1. maí. Uppkast að sögunni þarf síðan að vera komið til okkar 10. maí. Við höldum þá rithring með höfundunum 15. maí þar sem við gefum hvert öðru ábendingar og ráð og síðan skila allir fullkláraðri sögu 20. maí.

Gangi ykkur vel í prófunum,

Útgáfunefnd

4 athugasemdir

Hin nýja stjórn Ritvélarinnar

23.4.2010

Ég, fyrir mitt leyti, fagna nýjum harðstjórum vor!

Formaður – Tumi Ferrer

KRJÚPIÐ ELLEGAR DEYJIÐ!

Gjaldkeri – Þorgerður Ösp

Ritari – Hertha María

Hagsmunafulltrúi nemenda – Esther Ýr

Meðstjórnandi – Sykursteinn

Heil sé ykkur!

14 athugasemdir

Staðsetning kosninga…

21.4.2010

…er fundin!

Næsti bar, kl. 20:00. Tilboð á barnum.

Vonumst til að sjá sem flesta!

-Stjórnin

Engar athugasemdir

Kosningar!

19.4.2010

Kæru ritlistarnemar!

Nú fer senn að líða að annarlokum og boðar þess vegna Ritvélin til kosninga næstkomandi fimmtudag þann 22. apríl! Staðsetning verður auglýst síðar. Ritlistarnámið er ennþá nýtt og þess vegna geta nemendur haft mikil áhrif á mótun námsins og stefnu. Það er undir okkur komið að gera sem mest úr náminu og upphefja það á hærri grundvöll listsköpunar. Með því að taka virkan þátt í nemendafélaginu býðst einstakt tækifæri til að efla og styrkja ritlistarnámið á einstakan hátt. Allir ritlistarnemar geta boðið sig fram og kosið svo lengi sem þeir séu á staðnum.

Listi yfir embætti Ritvélarinnar:

1. Formaður

2. Gjaldkeri

3. Ritari

4. Hagsmunafulltrúi nemenda

5. Meðstjórnandi

Frambjóðendum gefst færi á að kynna sig og að halda litla tölu áður en gengið verður til kjörs. 

Einnig verður kosið um samþykki laga Ritvélarinnar, en umræða og lokaútgáfu þeirra má finna á þessum þræði á spjallinu:

http://spjall.ritvelin.org/viewtopic.php?f=6&t=46

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest!

Kveðja,

Ritvélin

Engar athugasemdir