Árshátíð Ritvélarinnar verður haldin þann 27. mars næstkomandi á Horninu, mæting kl. 19:00. Eftir matinn verður haldið í nálægt heimahús þar sem Ritvélin býður upp á veigar og aðrar dásemdir. Hér ber að líta matseðilinn, en þetta verður hlaðborð:
- Lasagne al forno.
- Tagliatelle með skinku og sveppum í rjómasósu.
-Kalt pastasalat – ferskt grænmetissalat – hvítlauksbrauð.
Dressingar – hvítlauksolía – chilliolía.
Ýmsar tegundir af pizzum af matseðli, til dæmis með:
skinku – sveppum – pepperoni – ananas -
nautahakki – grænmeti og fl.
Hér er tengill á síðuna hjá Horninu: http://www.hornid.is/Hornid/Horni.html
Fyrir félaga Ritvélarinnar kostar þetta litlar 2500 kr. en 3500 fyrir þá sem eru ekki skráðir í félagið. Makar eru að sjálfsögðu velkomnir og borga þeir 3500 (nema þeir séu félagar, að sjálfsögðu). Drykkir eru ekki innifaldir í matnum, þó hægt sé að panta þá og borga á staðnum, en fyrir þá mjög þyrstu verður að sjálfsögðu nóg í eftirpartíinu.
Hér eru leiðbeiningar fyrir borgun:
Leggið upphæðina inn á reikning okkar gegnum heimabanka og merkið færsluna sem ‘Árshátíð‘ eða ‘Árshátíð+‘ ef þið eruð að borga fyrir maka. Munið að senda líka kvittun á ritvelin@gmail.com. Endilega einnig tilkynna komu ykkar í kommentunum hér fyrir neðan.
Reikningur: 0338-26-460209
Kennitala: 460209-1020
Við hlökkum rosalega til og vonumst til að sjá ykkur sem flest! Það er rúm fyrir u.þ.b. 35 manns og við vonum að það fyllist upp!
Færslan er flokkuð sem Óflokkað og hægt er að fylgjast með umræðunni gegnum RSS 2.0.
Öhhh crap. Ég er að halda tvö barnaafmæli þennan dag. Má ég koma bara í partýið eftirá? Ég drekk hvort sem er ekki áfengi
Auðvitað máttu koma. Við höfum eitthvað í boði (fyrir utan vatn) fyrir þá sem vilja ekki áfengi.
Ég og Egill komum!
Ég kem.
Eg kemst í partýið, hvar verður það haldið??
Laugavegi.
Partíið er hjá mér!
Og ég skrái mig líka hér með.
Mig langar líka að vita, eru fleiri grænmetisætur í hópnum (þá fyrir utan mig, Hildi og Herthu) eða manneskjur sem myndu ráðast á grænmetisréttina? Ef hlutfall grænmetisæta verður ofboðslega hátt ættum við kannski að láta Hornið vita.
Ég skal með:)
Ég mæti!
Ég kem pottþétt. Veit samt ekki alveg strax hvort ég verði einn eða hvort ég verði tveir. Borga um leið og það er á hreinu.
Varla þarf að taka fram að ég mæti!
Ég kem a.m.k. í partýið..
Læt vita tímanlega ef ég kem með á Hornið, ég er einmitt líka grænmetisæta.
Tek í sama streng og herra Gunnar J., kem allavega í partíið, og myndi frekar kjósa að borða sem minnst af holdi ef ég kemst í matinn.
Læt líka vita tímanlega. Mjög tímanlega.
ég mæti. ég borga þegar bankinn opnar.
Ég veit ekki hvort ég kemst, og ef ég kem hvort ég kem sem +1. Er í lagi að mæta bara í partýið? Mjög líklegt að þetta skarist á við vinnu.
Fyrir hvaða tíma þarf að láta vita hvort maður kemur í matinn? Ekki komið á hreint hvort maður kemst.
Það þarf að skrá sig og borga fyrir 12 á hádegi fimmtudaginn 25. mars.
Munið að senda tilkynningu á ritvelin@gmail.com!
það er semsagt í lagi að skippa kjötinu en flagga búsinu?
að mæta einungis í eftirpartý…
Ó boj, verð veislustýra á annarri árshátíð sama kvöld og kemst því ekki í matinn. Ég lauma mér hinsvegar út þegar ég get og kem í Ritvélargleðskapinn…
Ég tek allan pakkan bara.
Get ekki beðið eftir því að raða í mig krásum og sötra pent á rauðvíni með. Mjög pent hehehehe…
Ég og Auður mætum
ég mæti í mat og partí!
ég kemst ekki í matinn en mæti pottþétt í partyið.
Ég kem ein
Ég var víst full yfirlýsingaglaður þegar ég sagði: „Ég mæti!“
Þetta er það sem ég vildi sagt hafa: „Ég mæti ekki í matinn, en ég reyni að mæta í partíið, bara svolítið seint kannski.“
Partíið verður að Laugavegi 25, beint á móti Hótel Frón. Það er á 4. hæð, beint við hliðina á lyftunni. Ef þið komist ekki inn að framan þá er bjalla að aftan (hægra megin við húsið) sem er með hjarta á. Annars getið þið bara hringt í mig, 865-4666 eða einhvern vin ykkar sem þegar er kominn inn.
Ég hef nú lokið við að greiða. Fyrir tvo. Svo kann að vera að ég endi þarna einn, en þá borða ég bara á við tvo í staðinn. Þrjá jafnvel.
ég mæti í allt saman…
Ég kem í mat og partý. Búin að borga.
já hérna, betur seint en aldrei, ég er búin að borga! og senda kvittun og allt og ég verð að sjálfsögðu með í öllum pakkanum
Ég mæti í partí
ég er skráður
ég vona að það sé ekki of seint að láta vita, en ég kemst því miður ekki…
kl hvað byrjar eftirpartyið
Það fer eftir því hvað við verðum lengi að borða.