Vélritið vill þig!

10.3.2010 kl. 14:25

Kæru ritlistarnemar,

Okkur var rétt í þessu að berast mikilvæg skilaboð frá hinni göfugu ritstjórn Vélritsins:

—–

Sæl öll !

Vélritið fær nýtt útlit! Um er að ræða eina A4 síðu, brotna til helminga. Planið er að blaðið verði minna um sig en komi jafnframt oftar út. „Þemað“ í fyrsta blaðinu verður max 37 orða ör-skrif af einhverju tagi, hvað sem úr huganum flæðir, handskrifað eður ei. 
Einnig viljum við birta myndir sem mættu þá vera meðalmanns vísifingur á breidd og hæð. 

Póstfangið er það sama: velritid@gmail.com 

Vonum að innhólfið fari að fyllast af örskrifum sem fyrst!

Bestu kveðjur

—–

Við hvetjum ykkur öll til að senda inn efni og það samstundis!

Kveðja,

Ritvélin

Færslan er flokkuð sem Óflokkað og hægt er að fylgjast með umræðunni gegnum RSS 2.0.

3 svör eru við færsluna “Vélritið vill þig!”

Skrifaðu athugasemd