Færslur frá 3.2010

Ný bók! Efni óskast!

29.3.2010

Sælir ritlistarnemar!

Við hjá útgáfunefnd Ritvélarinnar erum hér með farin að auglýsa eftir efni í næstu bók. Bókin mun innihalda bæði smásögur og ljóð. Verkin mega ekki vera lengri en 3000 orð og aðeins geta þeir sem borgað hafa félagsgjöld sent inn efni. En ekki örvænta ef það hefur gleymst því Ritvélin hefur opnað aftur fyrir skráningu:

Félagsgjöld eru 1500 kr. Munið að senda líka kvittun á ritvelin@gmail.com.

Reikningur: 0338-26-460209

Kennitala: 460209-1020

Síðasti séns til að senda inn efni er 1. maí. Þá getur útgáfunefndin undirbúið útlit og uppsetningu bókarinnar en síðasti skiladagur fyrir rýningu er 15. maí. Hver höfundur borgar með sér 10.000 kr en fær í staðinn 10 bækur.

Tekið er við efni á ritvelin@gmail.com

Gangi ykkur vel,
útgáfunefnd.

3 athugasemdir

Árshátíð Ritvélarinnar

15.3.2010

Árshátíð Ritvélarinnar verður haldin þann 27. mars næstkomandi á Horninu, mæting kl. 19:00. Eftir matinn verður haldið í nálægt heimahús þar sem Ritvélin býður upp á veigar og aðrar dásemdir. Hér ber að líta matseðilinn, en þetta verður hlaðborð:

- Lasagne al forno.
- Tagliatelle með skinku og sveppum í rjómasósu.
-Kalt pastasalat – ferskt grænmetissalat – hvítlauksbrauð.
Dressingar – hvítlauksolía – chilliolía.
Ýmsar tegundir af pizzum af matseðli, til dæmis með:
skinku – sveppum – pepperoni – ananas -
nautahakki – grænmeti og fl.

Hér er tengill á síðuna hjá Horninu: http://www.hornid.is/Hornid/Horni.html

Fyrir félaga Ritvélarinnar kostar þetta litlar 2500 kr. en 3500 fyrir þá sem eru ekki skráðir í félagið. Makar eru að sjálfsögðu velkomnir og borga þeir 3500 (nema þeir séu félagar, að sjálfsögðu). Drykkir eru ekki innifaldir í matnum, þó hægt sé að panta þá og borga á staðnum, en fyrir þá mjög þyrstu verður að sjálfsögðu nóg í eftirpartíinu.
Hér eru leiðbeiningar fyrir borgun:

Leggið upphæðina inn á reikning okkar gegnum heimabanka og merkið færsluna sem ‘Árshátíð‘ eða ‘Árshátíð+‘ ef þið eruð að borga fyrir maka. Munið að senda líka kvittun á ritvelin@gmail.com. Endilega einnig tilkynna komu ykkar í kommentunum hér fyrir neðan.

Reikningur: 0338-26-460209

Kennitala: 460209-1020

Við hlökkum rosalega til og vonumst til að sjá ykkur sem flest! Það er rúm fyrir u.þ.b. 35 manns og við vonum að það fyllist upp!

36 athugasemdir

Vélritið vill þig!

10.3.2010

Kæru ritlistarnemar,

Okkur var rétt í þessu að berast mikilvæg skilaboð frá hinni göfugu ritstjórn Vélritsins:

—–

Sæl öll !

Vélritið fær nýtt útlit! Um er að ræða eina A4 síðu, brotna til helminga. Planið er að blaðið verði minna um sig en komi jafnframt oftar út. „Þemað“ í fyrsta blaðinu verður max 37 orða ör-skrif af einhverju tagi, hvað sem úr huganum flæðir, handskrifað eður ei. 
Einnig viljum við birta myndir sem mættu þá vera meðalmanns vísifingur á breidd og hæð. 

Póstfangið er það sama: velritid@gmail.com 

Vonum að innhólfið fari að fyllast af örskrifum sem fyrst!

Bestu kveðjur

—–

Við hvetjum ykkur öll til að senda inn efni og það samstundis!

Kveðja,

Ritvélin

3 athugasemdir

Vísindaferð með Torfhildi

9.3.2010

Heil og sæl!

Öðlingarnir í Torfhildi hafa gerst svo góðir að bjóða okkur með sér í vísindaferð í Ölgerðina. Mæting er á slaginu 17:00 (húsið lokar skömmu seinna) á Grjótháls 7-11. Plássin eru u.þ.b. 40-50 í heildina og var Mímrum einnig boðið, svo við hvetjum ykkur til að vera snögg til og skrá ykkur!

Öll skráning fer fram í gegnum Torfhildi á http://www.torfhildur.blog.is/blog/torfhildur/

Pís,

Ritvélin

6 athugasemdir