Færslur frá 2.2010

Umræða varðandi næstu útgáfu

22.2.2010

Jó,

Næstkomandi fimmtudag, þann 25. febrúar, mun Ritvélin standa fyrir opnum umræðufundi varðandi næstu útgáfu. Við viljum heyra hvaða hugmyndir þið hafið fyrir næstu bók og sömuleiðis láta ykkur vita hvernig staðan er hjá okkur. Fundurinn verður frá 15:00-16:25 í stofu 423, Árnagarði.

Um leið auglýsum við eftir sjálfboðaliðum í ritnefnd. Það er enn óákveðið hvort gefnar verða út tvær bækur (ljóðabók og smásagnasafn) eða ein (þetta verður m.a. umræða fundarins), svo fjöldi og tilhögun ritnefnda er enn óvís. Sendið allar umsóknir á ritvelin@gmail.com.

Einnig höfum við opnað aftur fyrir skráningar í nemendafélagið, þar sem einungis félagar geta verið með í útgáfunni. Félagsgjöld eru 1500 krónur og á að leggja inn á eftirfarandi reikning:

Reikningsnúmer: 0338-26-460209
Kennitala: 460209-1020

Munið að senda kvittun á ritvelin@gmail.com ásamt því að senda póst frá/með því netfangi sem þið viljið að fari á póstlista okkar og nafni, svo við höfum nú pottþétt alla á félagalistanum.

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest!

Engar athugasemdir

Vísindaferð í Forlagið á föstudag!

15.2.2010

Nú er komið að fyrstu vísindaferðinni á nýju ári, og er förinni heitið í Forlagið.

Að þessu sinni verður þetta sameiginleg heimsókn með Mími, félagi íslenskunema, og er partýið því haldið á Fiskislóð 39 – þar sem lager- og bókamarkaður Forlagsins er til húsa. Þar er hægt að teygja vel úr sér.

Staðsetning: Fiskislóð 39, (í nágrenni við Bónus og Löður – kort má finna hér: http://skrar.forlagid.is/bokamarkadur/)

Mæting: kl. 17.30 – föstudaginn 19. febrúar

Dagskráin er frekar fjölbreytt, veitingarnar ekki af verri endanum og allir eru hvattir til þess að spyrja sem mest.

Hvort félag má mæta með 20 gesti, og er hérmeð opnað fyrir skráningar í kommentakerfi.

Hvort félag verður einnig að tilnefna þrjá félagsmenn úr sínum röðum sem verja munu heiður síns félags í svínslegri spurningakeppni, og þeir sem hafa áhuga á að berjast fyrir Ritvélina eru jafnframt beðnir um að lýsa yfir áhuga við skráningu.

Fyrstir koma, fyrstir fá þannig að einn, tveir og skrá sig!

-Ritvélin.

53 athugasemdir

Leirburðarkeppni!

9.2.2010

Kæru ritlistarnemar,

Nú á fimmtudaginn ætla Torfhildur og Ritvélin að standa fyrir sameiginlegu leirburðarkvöldi, á Næsta bar kl. 20:00.

Dómari að þessu sinni er Jason Rotstein, ljóðskáld með meiru, og af þeim sökum verður keppnin á ensku.

Vonumst til að sjá sem flest, og stefnan er að redda tilboðum á barnum.

-Stjórnin

Engar athugasemdir

Vélritið

8.2.2010

Sæl öll!

Vélritið fær nýtt útlit! Um er að ræða eina A4 síðu, brotna til helminga. Planið er að blaðið verði minna um sig en komi jafnframt oftar út. „Þemað“ í fyrsta blaðinu verður mx 37 orða ör-skrif af einhverju tagi, hvað sem úr huganum flæðir, handskrifað eður ei. Einnig viljum við birta myndir sem mættu þá vera meðalmanns vísifingur á breidd og hæð.

Póstfangið er það sama:    velritid@gmail.com   

Vonum að innhólfið fari að fyllast af örskrifum sem fyrst!

Bestu kveðjur

Ritstjórn Vélritsins

Sverrir, Tumi og Hlín

Engar athugasemdir

Tvífarar II

7.2.2010

Rúnar Helgi Vignisson og Richard Gere.

tvifarar2

Eftir á að hyggja hef ég aldrei séð þá tvo á sama stað á sama tíma. Tilviljun?

5 athugasemdir

Ritvélin lifir!

4.2.2010

Allar fregnir af andláti Ritvélarinnar eru stórlega ýktar.

En hitt er annað mál að janúar fór illa í stjórnarmeðlimi. Tveir fengu þvagfærasýkingu, einn fór í meðferð og annar fékk tilboð sem hann gat ekki hafnað.

En hækkandi sól hefur hleypt nýjum krafti í stjórn og hefur hún ýmislegt spennandi á prjónunum. Þar ber helst að nefna vísindaferðir, árshátíð, samkeppnir með glæsilegum verðlaunum, og síðast en ekki síst útgáfa á splunkunýrri bók ritlistarnema.

En meira um það síðar.

-Stjórnin

1 athugasemd