Færslur frá 1.2010
Hvernig verður bók til? Auður Ava Ólafsdóttir
20.1.2010
Við hvetjum ykkur öll til að mæta á þennan fyrirlestur þar sem ritlistarnemar geta sérstaklega notið góðs af þeim. Þátttaka ritlistarnema hefur verið döpur undanfarið og við viljum sjá fleiri kunnugleg andlit þarna! Mætið og njótið vel – maður veit aldrei hvaða hugmyndir eða upplýsingar sem nýtast manni gætu komið fram.
Hádegisfyrirlestur 21. janúar kl. 12 í stofu 105 á Háskólatorgi
Auður Ava Ólafsdóttir ræðir um Afleggjarann
Auður Ava Ólafsdóttir kvaddi sér fyrst hljóðs með skáldsögunni Upphækkuð jörð árið 1998. Síðan kom skáldsaganRigning í nóvember sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og nú síðast Afleggjarinn sem hreppti Menningarverðlaun DV, Fjöruverðlaunin og var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Í fyrirlestri sínum mun Auður Ava ræða um tilurð Afleggjarans. Bókin fjallar um föður sem tekst á hendur ævintýralega ferð til að rækta rósir í fjarlægum klausturgarði.
Fyrirlestur Auðar er hluti af röð hádegisfyrirlestra sem ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands efna til í vetur undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?“ Þar veita íslenskir rithöfundar innsýn í tilurð þekktra ritverka, lýsa vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og ræða um viðhorf sín til skáldskaparins. Áður hafa þau Jón Kalman Stefánsson, Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir og Einar Kárason flutt fyrirlestra í röðinni og hafa þeir verið fjölsóttir og vakið mikla athygli.
Fyrsta bjórkvöld Ritvélarinnar 2010
20.1.2010
Fátt er ritlistarnemum jafn hollt og (ó)hófleg neysla áfengis og annarra vímugjafa. Fyrsta bjórkvöldið verður haldið á Næsta Bar á morgun, fimmtudaginn 21. janúar, kl. 20:00. Ef allt fer á besta veg endum við dauðadrukkin niðri í kirkjugarð að skrifa ódauðlegan skáldskap. Mætið!
Endurómun
10.1.2010
Endurómun færir okkur innsýn inn í nýjustu kenningar um mannsheilann.
Útskýrð verða grunnferli skynjunar, minninga og drauma. Leiksviðið er
notað til þess að prófa þessar kenningar á sviðinu sjálfu og í huga
áhorfandans.
Við notum minimalískar aðferðir til þess að tækla viðfangsefnið þar sem
ljós, hljóð og hreyfingar verða settar í jöfnur sem koma til með að hægja
á tímanum og beygja skynjun áhorfandans til að sýna fram á að heilinn er
ekki eins nákvæmt tæki og við höldum.
Sýningin er í Borgarleikhúsinu 13. og 14. janúar, næsta miðvikudag og fimmtudag.
Viðvörun: Flogaveiku fólki er ráðlagt frá því að sjá sýninguna vegna
notkunar blikkljósa (strope ljósa) í sýningunni sem þekkt er að geti
framkallað flog eða aðra vanlíðan hjá flogaveikum.
Meiri upplýsingar og myndbönd:
Facebook: Endurómun
og
Borgarleikhus.is