Færslur frá 12.2009

Ár og friður

31.12.2009

Þá er fyrsta starfsár Ritvélarinnar að renna sitt skeið og eflaust væri við hæfi að setja saman einhvers konar annál eða samantekt af því tilefni. Og ef til vill verður það gert – en ekki núna. Á þessu augnabliki vill Ritvélin einfaldlega óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka kærlega fyrir samstarfið, drykkjuna og skrifin á liðnu ári. Megi þið öll fá útgáfusamning á nýju ári. Það gæti jafnvel verið smá sárabót fyrir áfengiseitrunina sem þið fáið vafalaust öll í kvöld.

Gleðilegt ár!

- Ritvélin

1 athugasemd

Tvífarar

31.12.2009

Hér verður bryddað upp á nýjung; Tvíförum Ritvélarinnar.

Heiðurinn af því að vera fyrsta parið fá þeir kumpánar, Tumi Ferrer, ritlistarnemi, og Egill Helgason, sem hefði gott af ritlistarnámi.

Tvífarar

Tvífarar

2 athugasemdir

Gleðileg jól!

24.12.2009

Ritvélin óskar öllum – skrifandi og óskrifandi, nær, fjær og miðlungs – innilega til hamingju með jólin og að þau skyldu koma þetta árið. Knús og kossar.

- Ritvélin

2 athugasemdir

Próflokadjamm!

11.12.2009

Próflokapartí Ritvélarinnar verður haldið þann 18. desember, kl. 20:00 á Aragötu 10! Ritvélin býður upp á áfengar veigar, en mjög, mjög þyrst fólk getur einnig komið með sitt eigið. Höldum upp á það öll sem eitt að prófunum skuli loks vera lokið!

Endilega boðið komu ykkar í kommentum hér fyrir neðan eða á feisbúkk!

-Ritvélin

3 athugasemdir

Umræður um framtíð ritlistarinnar

8.12.2009

Kæru ritlistarnemar,

Eins og mörg ykkar vita má búast við breytingum á tilhögun ritlistarnámsins. Nýnemar verða ekki teknir inn á næsta ári sökum þess hversu margir nemar eru nú skráðir í ritlist og verið er að móta hugmyndir að því hvernig sinna megi nemendum sem best við núverandi aðstæður. 

Þess vegna boða Rúnar Helgi, lektor í ritlist, og Ritvélin, nemendafélag ritlistarnema, ykkur til umræðufundar mánudaginn 14. desember kl. 15:00 í stofu 101, Árnagarði. Tilgangur fundarins er að leyfa ritlistarnemum að koma skoðunum sínum og spurningum á framfæri, að leyfa okkur að hafa áhrif á framtíð námsins sem við stundum. Við hvetjum ykkur til að mæta og taka þátt í umræðunni um framtíð ritlistarinnar við Háskóla Íslands.


Mánudaginn 14. desember kl. 15:00 í stofu 101 í Árnagarði.


Við vonust til að sjá ykkur sem flest.

Engar athugasemdir