Færslur frá 11.2009

Íslensku barnabókaverðlaunin 2010

26.11.2009

Lumar þú á handriti að barnabók? Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handritum að skáldsögu fyrir börn og unglinga.
Sagan skal vera að lágmarki 50 blaðsíður að lengd. Ekki er gert ráð fyrir því að verðlaunasagan verði myndskreytt.

Skilafrestur er til 1. febrúar 2010. Dómnefnd velur besta handritið og kemur það út hjá Forlaginu haustið 2010.
Verðlaunin nema 500.000 krónum auk höfundarlauna.

Handritum skal skila í fjórriti til:
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Forlagið
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík

Handrit á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í umslagi.
Handrit eru ekki endursend en hægt er að nálgast þau hjá Forlaginu á tímabilinu 1. maí til 1. september 2010.

Frekari upplýsingar veitir Sigþrúður Gunnarsdóttir í síma 575 5604 / sigthrudur@forlagid.is

3 athugasemdir

Vísindaferð í Bjart á föstudag!

23.11.2009

Næstkomandi föstudag, þann 27. nóvember, ætlum við að fagna síðasta kennsludegi með því að fara í vísindaferð í Bjart!

Það komast 25 manns með og skráning er hér í kommentakerfi. Einsog áður þá ganga meðlimir Ritvélarinnar fyrir í skráningu og við viljum einnig auglýsa eftir einhverjum sem vill halda partý eftir ferðina. Áhugasamir gefi sig fram við einhvern í stjórn eða sendi póst á ritvelin@gmail.com

Ritvélin ætlar að splæsa í drykki, en þeir sem ætla að taka virkilega vel á því eru þó beðnir um að koma með eitthvað áfengi sjálfir.

Mæting í Bjart kl. 17:00 á Bræðraborgarstíg 9.

Og einn tveir og skrá sig!

-Ritvélin

29 athugasemdir

Upplestur úr jólabókum á föstudag!

18.11.2009

Kæru ritlistarnemar,

Næstkomandi föstudag (20. nóvember) verður jólabókaupplestrarkvöld á vegum Mímis, Torfhildar og Ritvélarinnar. Herlegheitin byrja klukkan 20:00 í
stofu 201 í Árnagarði og verður boðið upp á hvítvín, rauðvín, kaffi og piparkökur!

Rithöfundar sem verða á svæðinu og lesa upp úr bókum sínum eru Sigurður
Pálsson, Viktor Arnar Ingólfsson, Þórarinn Eldjárn og Steinar Bragi.

Við hvetjum alla til að mæta í kósíheitin!

-Ritvélin

2 athugasemdir

Hvernig verður bók til? Fyrirlestur 18. nóv

13.11.2009

Hádegisfyrirlestur 18. nóvember kl. 12 í stofu 102 á Háskólatorgi

Einar Kárason ræðir um Ofsa

Í fyrirlestri sínum mun Einar ræða um tilurð skáldsögunnar Ofsi sem kom út árið 2008 og hreppti m.a. Íslensku bókmenntaverðlaunin. Í sögunni stíga fram persónur frá Sturlungaöld og segja hug sinn í aðdraganda Flugumýrarbrennu.

Einar Kárason hefur lengi verið einn af atkvæðamestu höfundum þjóðarinnar. Hann hefur skrifað verk af ýmsu tagi, jafnt sannsögulegt sem skáldað. Fyrsta bók hans, ljóðabókin Loftræsting: farir mínar holóttar, kom út árið 1979, en síðan hefur hann sent frá sér fjölda bóka sem flestar hafa fallið í góðan jarðveg hjá þjóðinni. Meðal þekktustu bóka hans má nefna Þar sem Djöflaeyjan rís, Gulleyjuna, Storm og Óvinafagnað.

Fyrirlestur Einars er hluti af röð hádegisfyrirlestra sem ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands efna til í vetur undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?“ Þar veita íslenskir rithöfundar innsýn í tilurð þekktra ritverka, lýsa vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og ræða um viðhorf sín til skáldskaparins. Jón Kalman Stefánsson og Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir hafa þegar flutt fyrirlestra í röðinni og hafa þeir vakið mikla athygli.

Einar talar í stofu 102 á Háskólatorgi miðvikudaginn 18. nóvember kl. 12:00. Allir ritlistarnemar að mæta og spyrja Kárason spjörunum úr.

Engar athugasemdir

lumar þú á skvísusögu?

12.11.2009

Skilaboð frá Sölku bókaútgáfu:

Nú er komið að ykkur!!!

Við vitum að þið eigið þær inni: Sögur af karlmönnum og kokteilum, draumórum, mömmum, vinkonum, vinnustöðum, skandölum og skóm. Skutlið á blað einni skemmtilegri, fyndinni, einlægri, bullandi, pínlegri, heiðarlegri, ýktri, asnalegri eða bara alveg sannri lýsingu úr kvennahversdegi.

Salka blæs til chick-lit örsögukeppni. Vegleg verðlaun og bestu sögurnar kynntar á Sölkukvöldi í Iðu þriðjudaginn 17. nóv.

Sendið örsögur á frida@salkaforlag.is fyrir hádegi mánudaginn 16. nóv.

Látið boðin berast…
Allir í hælana! x

Engar athugasemdir

Ópen mæk

11.11.2009

Nýhil efnir til svokallaðs Open Mic kvölds á Næsta bar næsta fimmtudag. Sem vildarvinir Nýhiljar hvetjum við félaga Ritvélarinnar til að mæta og segja eitthvað af viti til að vega upp á móti kjaftæðinu sem á eftir að vella úr meðlimum anarkistahópsins geðþekka. Allar nánari upplýsingar á þessu veggspjaldi hér fyrir neðan. Jebb.

Engar athugasemdir

Úrslit úr annarri smásagnasamkeppni!

9.11.2009

Dómnefnd hefur legið sveitt yfir sögunum sem bárust í annarri smásagnasamkeppni Ritvélarinnar og loksins liggja úrslit fyrir!

Þau eru:

1. sæti Sólrún Jóhannesdóttir fyrir söguna Garp

2. sæti Bryndís Emilsdóttir fyrir söguna Vöku

3. sæti Pálmi Freyr Hauksson fyrir söguna Sannleikann

Öll fá þau smásagnasafnið Alltaf sömu söguna e. Þórarinn Eldjárn og Sólrún fær auk þess Ummyndanir Óvíðs í nýrri þýðingu Kristjáns Árnasonar og voru verðlaunin að þessu sinni í boði Forlagsins.

Við óskum þeim til hamingju og þökkum öllum þeim sem sendu inn sögu.

-Ritvélin

Engar athugasemdir

bjórbjórbjórbjór

3.11.2009

bjór

Fimmtudagsbjór á fimmtudegi!

Ritlistarnemar ætla að hittast á fimmtudaginn næsta, á Næsta bar kl. 20:00.

Heimsmálin verða krufin til mergjar, auk þess sem þeim sem að fengu þann vafasama heiður að bera sigur úr býtum á leirburðarkvöldinu í síðustu viku verða afhent verðlaun sín.

Komið með góða skapið og mole skin bækurnar ykkar.

Tilboð á barnum.

-Ritvélin

3 athugasemdir

Við minnum á skilafrest á smásögum!

2.11.2009

Við viljum nota tækifærið og óska ykkur gleðilegs mánudags og minnum jafnframt á skilafrestinn á smásagnasamkeppni Ritvélarinnar, en hann er til miðnættis miðvikudaginn 4. nóvember .

Sem fyrr má saga að hámarki vera fimm blaðsíður (12 pt letri, 1 og ½ línubil). Sögur mega ekki hafa birst annarsstaðar og einnig er bryddað uppá þeirri nýjung að innsendar sögur mega heldur ekki vera verkefni úr ritlistartímum. Sögur á að senda á ritvelin@gmail.com.

Þemað er lygasögur og í dómnefnd sitja mæður tveggja stjórnarmeðlima.*

Vegleg verðlaun í boði Forlagsins verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti, og verða vinningssögur einnig hugsanlega birtar í Vélritinu, nýju ofurtímariti Ritvélarinnar.

-Ritvélin

*Djók

Engar athugasemdir