Færslur frá 10.2009
Vélritið auglýsir eftir efni til birtingar
27.10.2009
Tímarit ritlistarnema hefur fengið nafn og kallast …
… Vélritið!
Nemendum er frjálst að senda inn eins mikið efni og þá lystir. (Ekki er þó ábyrgst að allt innsend efni fái birtingu.) Senda má inn örsögur, smásögur (helst ekki of langar), ljóð, kvæði, þýðingar, myndasögur, teikningar, myndverk, hvaðeina. Þá verða í blaðinu liðir sem nefnast hugleiðing (greinar, pistlar) og bablið (rökræður, rifrildi, skammir). Loks verður bóka- og höfundaumfjöllun, þar sem fjalla má um hvaða bók eða höfund sem er og kynna fyrir lesendum. Svo er fólki líka auðvitað frjálst að stinga upp á nýjum liðum.
Allt efni skal berast á velritid@gmail.com. Æskilegt er að allt hafi borist ritstjórn í síðasta lagi fyrir 10. nóvember.
Eru ekki allir geim?
- Sverrir, Hlín og Tumi
Leirburðarkeppni!
26.10.2009
Torfhildur, félag bókmenntafræðinema, og Ritvélin ætla í sameiningu að standa fyrir leirburðarkeppni fimmtudaginn næstkomandi, 29. október, á Næsta bar. Keppnin hefst klukkan 20:00 og enginn annar en háttvirtur Sigurður Pálsson hefur tekið að sér að dæma keppnina og velja lélegasta ljóðið.
Þau mega vera samin á staðnum, eða fyrir keppnina. Fólk flytur þau og afhendir dómara þau síðan á pappír.
Leirburður er í stuttu máli sagt lélegt ljóð eða ljóð þarsem reglur eru um rím, stuðla, hrynjanda og þess háttar sem almennt er notað í ljóðlist er ekki sleppt heldur gert illa. T.d. með ofstuðlun eða rímfalli. Einnig er hægt að nota vont eða lélegt myndmál eða hafa umfjöllunarefnið á einhvern hátt lélegt, ófrumlegt, óviðeigandi eða klisjukennt. Rétt einsog í ljóðlist þá er ekkert eitt endilega rétt en lykilatriði sem greinir á milli leirburðar og einhvers bulls er það að lesandi verður að finnast ljóðið hræðilegt en jafnframt að trúa því að einhver hafi samið það í fúlustu alvöru sem alvöru ljóð.
Tilboð á barnum er eftirfarandi:
Bjór 550.-
Guinness 650.-
Bjór & skot 1000.-
Kokteilar og einfaldur í gos 850.-
Skot 500.-
-Ritvélin
Ljósvakaljóð, stuttmynda- og handritakeppni
26.10.2009
Ljósvakaljóð, stuttmynda- og handritakeppni unga fólksins, fer fram 5. nóvember. Í fyrsta skipti í ár verður handritakeppni á vegum keppninnar.
Þegar þú horfir á bíómyndir, hugsar þú stundum að þú hefðir getað skrifað miklu betra handrit sjálf/ur? Áttu ef til vill eitt slíkt (eða fleiri) ofan í skúffu sem þú hefur kirfilega læsta? Ef svo er ættir þú að kynna þér handritakeppni Ljósvakaljóða.
Í ár er bryddað upp á þeirri nýjung að gera keppendum hátíðarinnar fært að keppa sín á milli um besta stuttmyndahandritið. Handrit skulu ekki vera lengri en 10 blaðsíður og skal þeim skilað í síðasta lagi mánudaginn 2. nóvember til Zik Zak, Hverfisgötu 14a, Bakhús, 101 RVK í þremur eintökum.
Eftir sýningar stuttmyndahátíðarinnar þann 5. nóvember næstkomandi verður tilkynnt um besta frumsamda kvikmyndahandrit hátíðarinnar og verðlaun veitt fyrir það.
Láttu reyna á skáldgáfu þína og dragðu handritið upp úr skúffunni!
Reglurnar eru eftirfarandi:
Fólk á aldrinum 15-25 ára má senda inn handrit
Handritið á að vera að kvikmynd/stuttmynd
Handritið má ekki vera lengra en 10 blaðsíður
Dómarar:
Friðrik Þór Friðriksson, ofurleikstjóri
Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur
Bergur Ebbi Benediktsson, tónlistarmaður
Verðlaun: 15.000 peningaverðlaun
Annars allar upplýsingar á www.ljosvakaljod.is
Ritvélsmiðja nr. 3!
23.10.2009
Þriðja ritvélsmiðjan verður haldin þann næstkomandi mánudag í stofu 301, Árnagarði, eftir Gangvirkið kl. 16:30. Við hvetjum alla ritlistarnema til þess að koma með efni til umræðu. Skipt verður í smærri hópa (4-6), svo 5 útprentuð eintök ættu að nægja.
Tíðni smiðju og upplestarkvölds er í endurskipulagningu. Núverandi áætlun okkar er að hafa ritvélsmiðju og upplestarkvöld til skiptis aðra hverja viku, þar sem að bjórkvöldin verða í ‘auðu’ vikunni. Ef að þið hafið einhverjar spurningar eða feedback, endilega kommentið eða sendið póst á ritvelin@gmail.com.
Tímariti hleypt af stokkunum!
21.10.2009
Á næstu dögum hefur göngu sína tímarit ritlistarnema við HÍ. Ritstjórn skipa Hlín Ólafsdóttir, Tumi Ferrer og Sverrir Norland. Í blaðið, sem að líkindum verður í senn gefið út á netinu og í pappírsformi, geta nemendur skrifað hugleiðingar, fylgst með og tekið þátt í umræðum – til að mynda argaþrætu nafnanna Jóns (Kalman) og Jóns (Halls) – og sent inn texta (sögur, ljóð, hvaðeina) til birtingar. Tímaritið er hugsað sem málgagn og birtingarvettvangur fyrir ritlistarnema, svo að þeir eru hvattir til að sýna því stuðning og áhuga, auglýsa það og senda inn efni. Án þeirra gengur þetta auðvitað ekki. Markmiðið er að tímaritið fari sem víðast og verði með tímanum stórveldi í íslenskri blaðaútgáfu og að lokum bákn.
Heiti blaðsins verður fastslegið á næstu dögum. Þá munum við jafnframt stofna netfang sem fólk getur sent á efni til birtingar. Meira um það síðar.
Loks er auglýst eftir snjöllum prófarkalesurum. Og ef í hópnum leynist snjall uppsetjari þá má hann endilega gefa sig fram …
Kveðja,
- S, H og T
Önnur smásagnasamkeppni Ritvélarinnar!
21.10.2009
Úrslit úr fyrstu smásagnasamkeppni Ritvélarinnar voru kynnt fyrir stuttu. Einsog þar kom fram voru sögurnar allar mjög góðar og það var erfitt að velja sigurvegara. Þáttaka var vonum framar og ætlum við því að hamra járnið á meðan það er heitt og tilkynnum með stolti aðra smásagnasamkeppni Ritvélarinnar!
Sem fyrr má saga að hámarki vera fimm blaðsíður (12 pt letri, 1 og ½ línubil). Sögur mega ekki hafa birst annarsstaðar og einnig ætlum við að brydda uppá þeirri nýjung að innsendar sögur mega heldur ekki vera verkefni úr ritlistartímum.
Þemað er að þessu sinni lygasögur og er skilafrestur til miðnættis miðvikudaginn 4. nóvember.
Forlagið veitir verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.
Og sem fyrr á að senda sögur á ritvelin@gmail.com.
-Ritvélin
Bjórkvöld n.k. fimmtudag!
21.10.2009
Jæja nú er loksins komið að bjórkvöldi fyrir ykkur, kæru samnemendur í Ritlist. Það verður haldið á NæstaBar nk. fimmtudag þann 22. október og byrjar kl. 20. Mætum, fáum okkur einn (tvo, þrjá…) kalda og spjöllum um það sem við eigum sameiginlegt, (jú eða ekki). Eigandi NæstaBars hefur samþykkt að hafa eftirfarandi afslætti fyrir félaga Ritvélarinnar:
Bjór 550.-
Guinness 650.-
Bjór & skot 1000.-
Kokteilar og einfaldur í gos 850.-
Skot 500.-
Mætið eða verið ferningar.
Hvernig verður bók til? – Hádegisfyrirlestur 21. október
18.10.2009
Hvernig verður bók til? Þórunn Erlu- ValdimarsdóttirHádegisfyrirlestur 21. október kl. 12 í stofu 102 á HáskólatorgiÞórunn Erlu- Valdimarsdóttir ræðir um tilurð skáldsögu sinnar, Stúlka með fingurÞórunn Erlu- Valdimarsdóttir er mikilvirkur og fjölhæfur rithöfundur sem ekki fer alltaf troðnar slóðir í verkum sínum. Hún sendi frá sér bókina Stúlka með fingur árið 1999 og hreppti hún Menningarverðlaun DV auk þess sem hún var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bókin er þroskasaga ungrar alþýðustúlku sem er send í sveit og kynnist forboðnum ástum.Fyrirlestur Þórunnar er hluti af röð hádegisfyrirlestra sem ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands efna til í vetur undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?“ Þar veita íslenskir rithöfundar innsýn í tilurð þekktra ritverka, lýsa vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og ræða um viðhorf sín til skáldskaparins. Jón Kalman Stefánsson reið á vaðið í september og vakti erindi hans miklar umræðar sem enn standa.
Sigurvegarar fyrstu smásagnasamkeppninnar!
16.10.2009
Yndisfögru ritlistarnemar,
Við kynnum með stolti sigurvegara fyrstu smásagnasamkeppnar Ritvélarinnar. Þemað að þessu sinni var Reykjavíkursögur. Dómnefnd skipaði stjórnin, alls fimm talsins. Sigurvegarar fá bækur eftir Jón Kalman í boði Bjarts. Þessar sögur voru valdar:
1. sæti: Karlinn í tunglinu e. Lilju Þorsteinsdóttur
2. sæti: Mynd án veggs e. Dag Hjartarson
3. sæti: Hann og hún e. Höllu Míu
Við þökkum kærlega öllum þeim sem tóku þátt og sendu inn sögu. Þetta var frekar snúið val og við vonum að enn fleiri taki þátt í næsta skiptið!
-Ritvélin
Ritvélin tekur þátt í NaNoWriMo!
16.10.2009
Hæfileikaríku ritlistarnemar,
Langar ykkur að skrifa skáldsögu?
NaNoWriMo, eða National Novel Writing Month, hefst þann 1. nóvember næstkomandi. NaNoWriMo er allsherjarátak þar sem þátttakendur eiga að skrifa uppkast að skáldsögu sem er a.m.k. 50.000 orð að lengd á einum mánuði. Við viljum ólm nýta þetta tækifæri til þess að skrifa eitthvað stærra í sniðum.
Áhersla er lögð á magn, ekki gæði. Ritstýringin kemur eftir á, ekki á meðan. Ekki hugsa þannig að þetta eigi að vera fullskapað meistaraverk í fyrstu skrifum! Þetta er bara byrjun á einhverju meira. Eina krafan er að unnið sé að skáldsögu og reynt sé að ná 50.000 orðum. Þetta er spark í rassinn sem á að nýta til þess að áorka einhverju!
Ef að þið hafið áhuga á að vera með í NaNoWriMohópi Ritvélarinnar, endilega sendið okkur póst á ritvelin@gmail.com og við bætum ykkur á póstlistann. Við ætlum að hafa a.m.k. eitt kvöld í viku þennan mánuðinn þar sem við hittumst og spjöllum um hvernig okkur gangi. Einnig munum við stofna sérsvæði á Ritvélarspjallinu fyrir umræður.
Síða NaNoWriMo: http://www.nanowrimo.org/
Feisbúkkgrúppan NaNoWriMohópur Ritvélarinnar: http://www.facebook.com/group.php?gid=152241463033