Færslur frá 9.2009

Smásagnasamkeppni!

30.9.2009

Nú er komið að fyrstu smásagnasamkeppni Ritvélarinnar!

Þemað er Reykjavíkursögur. Sögur mega að hámarki vera fimm blaðsíður (ath þó að þetta er hámark en ekki kvóti sem fylla þarf uppí, sögurnar mega vel vera styttri).

Þeim skal skilað inn á ritvelin@gmail.com fyrir 12. október og það eru vegleg verðlaun í boði!

-Ritvélin

9 athugasemdir

Ritstjóri óskast

25.9.2009

Einsog þið hafið ábyggilega öll tekið eftir hefur Ritvélin nýverið hleypt af stokkunum tveimur nýjum og spennandi verkefnum: upplestrarkvöldum og Ritvélsmiðjunni.

Nú er kominn tími á þriðja verkefnið: Útgáfu Ritvélritsins (uppástungur að öðrum  nöfnum vel þegnar því við gerum okkur grein fyrir því að það er mögulega takmarkað á hversu marga vegu er hægt að snúa útúr orðinu Ritvél). En allavega. Ritvélin hyggur á útgáfu tímarits. Það má vera á pappír, það má vera rafrænt, það má vera í áskrift, það má vera ókeypis, með auglýsingum, án auglýsinga, það má vera þemablað eða ekki og okkur vantar ritstjóra til að stýra því.

Ritstjóri mun vinna náið með stjórn og fengi í fyrsta lagi að ákveða hvernig útgáfu þess yrði háttað og í öðru lagi að marka sér eigin ritstjórnarstefnu. Við setjum eingöngu þær kröfur að gæði útgáfunnar verði höfð að leiðarljósi og að ritið verði vettvangur fyrir ritlistarnema að birta efni sitt.

Við óskum því eftir umsóknum um starf ritstjóra á ritvelin@gmail.com. Við erum að leita að manneskju með metnað, hugsjón og tíma til að sinna starfinu. Það þarf varla að taka fram að ritstjóri mun vinna frumkvöðlastarf og öðlast mikla reynslu sem mun nýtast honum í framtíðinni.

Einnig óskum við eftir að fá að heyra frá fólki sem hefur áhuga á að koma að útgáfunni með öðrum hætti, s.s. prófarkalestri, uppsetningu, auglýsingasölu (ef við á) osfrv. Ritstjóri mun þó sjálf/sjálfur fá að velja þau sem hann kýs til að starfa með sér að ritinu.

Með von um góðar undirtektir,

Ritvélin

Engar athugasemdir

Ritvélsmiðja og upplestrarkvöld!

19.9.2009

Kæru ritlistarnemendur!

 

Ritvélin hefur nú skipulagt tvo atburði í næstu viku og stefnum við á að standa fyrir þeim reglulega á námsárinu. Annars vegar er um að ræða smiðju og hins vegar open mic kvöld. Með því að auka skrif okkar utan náms og fá gagnrýni ásamt því að öðlast reynslu á að lesa upp ljóð og sögur getum við nýtt nám okkar betur til þess að öðlast áþreifanlega og praktíska reynslu strax í byrjun. Hér koma frekari upplýsingar:

 

Á mánudaginn þann 21. September mun Ritvélin standa fyrir svokallaðri Ritvélsmiðju klukkan 16:30 í stofu 301, Árnagarði.

Ritvélsmiðjan er vettfangur þar sem að ritlistarnemar geta komið með  ljóð eða smásögur, gamalt eða nýtt, hvað sem er, og fengið gagnrýni frá öðrum. Ritlistarkúrsarnir eru báðir með mjög stóra nemendahópa og við teljum að með þessu geti nemendur fengið enn meira út úr náminu. Þátttakendum verður skipt niður í minni umræðuhópa og gert er ráð fyrir u.þ.b. 1 og hálfum tíma. Mælst er til þess að fólk komi með c.a. 5+ útprentuð eintök og hafi efnið ekki allt of langt. Við vitum að þetta er stuttur fyrirvari, en að hika er að tapa og við megum engan tíma missa!

 

Einu skilyrðin fyrir þátttöku er að hver og einn taki virkan þátt í gagnrýni. Við munum koma til með að vinna í litlum hópum, svo allir þurfa að leggja sitt af mörkum til þess að þetta gangi upp. Það þýðir ekki að sitja sífellt hjá, segja ekki neitt og bíða eftir því að einhver annar taki af skarið. Frumkvæðið er þitt! Aðeins með virkri þátttöku allra mun þetta ganga vel fyrir sig.

 

Á fimmtudaginn þann 24. September mun Ritvélin standa fyrir open mic upplestrarkvöldi á Kaffi Rót, kl. 20:00. 

Við hvetjum alla til þess að mæta, hvort sem þeir stefni á að lesa upp eða ekki. Sviðið er opið fyrir alla sem vilja. Lesa má ljóð, smásögur, hvað sem er, sé það eftir ykkur sjálf eða aðra. Markmiðið er að við öðlumst reynslu af því að lesa upp fyrir framan hóp fólks og enginn sé óhræddur við að stíga upp á svið þegar námsárið er liðið!

 

Að svo stöddu er stefnan að standa fyrir þessum kvöldum aðra hverja viku, en það fer að sjálfsögðu eftir þátttöku hvernig það allt saman verður. Smiðjan býður upp á aukna framleiðslu í skrifum fyrir utan námið, uppbyggilega gagnrýni jafningja, svo ekki sé minnst á dýrmæta reynslu í að rýna skrif annarra. Upplesturinn er svo mikilvægur partur af því að fylgja eftir útgáfu, þar sem maður mun þurfa að lesa upp úr skrifum sínum fyrir framan hóp fólks.

 

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir, ekki hika við að hafa samband á ritvelin@gmail.com

 

Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest!

 

-Ritvélin

1 athugasemd

til þeirra sem ætla í vísindaferð…

16.9.2009

…þá verður haldið í heimahús eftir heimsóknina, þannig að endilega komið með áfengi með ykkur ef þið viljið!

-Ritvélin

2 athugasemdir

Skráning!

14.9.2009

Nú er búið að opna fyrir skráningu í vísindaferðina á auglýsingastofuna Jónsson & Le´macks.

Mæting á Vesturgötu 10 kl. 17.00 þann 18. sept.

25 manns komast með.

-Ritvélin

32 athugasemdir

Krísa! Kosningar! Ofl!

13.9.2009

Gott fólk,

Það er komin upp stjórnarkreppa í stjórn Ritvélarinnar!

Nei ok, ekki alveg, en hin háæruverðuga Marta Gunnarsdóttir, gjaldkeri Ritvélarinnar hefur því miður þurft að segja af sér sökum anna. Þið skuluð því gleyma titlinum í póstinum hérna að neðan, því Hildur hefur verið prómóteruð.

Það þýðir þó að Ritvélina vantar ritara. Því eru sem stendur lausar tvær stöður í stjórn Ritvélarinnar, nýnemafulltrúi og ritari. Þeir sem áhuga hafa á því að gegna störfum ritara eru beðnir að senda umsókn á ritvelin@gmail.com. Vinsamlegast athugið að þó einhverjir hafi þegar sent umsóknir um stöðu nýnemafulltrúa er ekkert því til fyrirstöðu að þeir sækji um ritarann líka. Best er þó að taka fram að þarsem Ritvélin er bæði forlag og nemendafélag fylgir stjórnarsetu talsverð vinna, en hún er þó langt frá því að vera leiðinleg. Við erum því að leita að fólki sem hefur metnað fyrir starfinu.

Kosning verður haldin á Næsta Bar næstkomandi þriðjudag kl. 20.00. Þar gefst frambjóðendum kostur á að kynna sig stuttlega og síðan verður kosið.

Þeir sem bjóða sig fram en fá ekki kosningu þurfa þó ekki að örvænta. Ritvélina vantar fólk í fleiri stöður utan stjórnar, s.s. skemmtinefnd, trúnaðarmann, ljósmyndara, einhverja til að halda utanum upplestra, leikhúsferðir, smiðjur og samkeppnir, og síðan mun án efa vanta heilan her af yfirlesurum og ritstjórum þegar hafist verður handa við næsta útgáfu.

-Ritvélin

Engar athugasemdir

Ritlistarneminn, #2

11.9.2009

Kæru lesendur,

 

Að þessu sinni kynnir Ritlistarneminn til sögunnar hina aldræmdu Hildi Knútsdóttur, háttvirtan ritara Ritvélarinnar.

Þið getið bókað það að ef ekki væri fyrir Hildi væri Ritvélin með fátt annað á dagskrá en hálfsmánaðarleg bjórkvöld og tilgangslaust röfl.

Hildur

Nafn, huldunafn, dulnefni og fursóna.

Hildur Knútsdóttir. Á hvorki huldunafn né dulnefni en spæjaranafnið mitt er Knúthildur. Og fursóna? Er það svona innra dýr? Nei annars, ég er ekki nógu vel að mér í pervertisma til að geta sagt til um það. Alexander og Lilja voru samt búnað segja mér hvað það var en ég er búin að gleyma því.

Hver er Hildur Knútsdóttir?

Innipúki. En við erum raunar tvær því  ég á alnöfnu/nemesis sem er hávaxin, ljóshærð markadrottning sem dúxaði í Versló OG var í ólympíuliðinu í stærðfræði. En ég er bara, tja, já.

Hvaða kennari er í uppáhaldi hjá þér?

Hmm… fróðlegra þætti mér að vita hjá hvaða kennara ÉG væri í uppáhaldi, en það er víst ekki á allt kosið. Þannig að ætli ég segi ekki bara Dagný Kristjáns, afþví hún er svo krúttleg. Og svo RHV, að sjálfsögðu.

Í hvaða kúrsum ertu þessa önn? Hvaða kúrs er í uppáhaldi og af hverju?
Ljóðum, Skáldsögum á 20. öld og Orðræðu líkamans. Og í augnablikinu líst mér best á Orðræðuna því þar fær minni innri ofur-feminísti að blómstra. Ekki það að hann fái ekki að viðra sig oft, en það er lúxus að fá einingar fyrir það.

Af hverju Ritvélin?

Já sko. Ég er tæknilega séð ekki einusinni skráð sem nemandi í ritlist heldur bókmenntafræði, en Ritvélin er bara svo ógeðslega ofurtöffað underground anarkískt nemendafélag að það kemur ekkert annað til greina. Svo eru líka bara svo margir sætir strákar í félaginu að það kom ekki annað til greina en að ganga í það. Hef samt enn ekki komist almennilega á séns.

Hver er uppáhalds liturinn þinn?

Strawberry blond.

Ef þú værir ekki þú, hver værir þú þá?

Nafna mín og nemesis? Nei ég veit það ekki.

Ef ég mætti ráða þá yrði ég Marie Curie og hefði fattað að ísótóparnir væru geislavirkir og alls ekki geymt þá í náttborðsskúffunni minni.

Hvaða bjór er bestur?

Það fer algjörlega eftir aðstæðum. Á sumrin þegar sólin skín drekk ég helst ljósan lager. Fyrir hádegi er gott að drekka hann úr litlum glösum, einsog hann er serveraður á Spáni og í Hollandi. Þegar líður á daginn er sjálfsagt að drekka úr stærri glösum. Persónulega vil ég þó síður hafa þau stærri en hálfslítra, en það er einungis vegna þess að ég á bágt með að lyfta þeim með annarri hendi. En ég er þó hrifin af hugmyndinni um líters bjórglös. Og ég drekk helst mið-evrópska lagera, en hef þó farið að hallast að asískum lagerum síðustu árin.

Á haustsíðdegi er Killkenny bestur (sorrí Óli) en á rólegum Ritvélarhittingum kemur ekkert nema Guinnes til greina. Og við kertaljós vil ég fá þýskan hveitibjór úr krana.

Uppáhalds kvót í einhvern frægan?

Ég er ekki kvótapervert en þetta rak ég augun í áðan og minnti mig á sjálfa mig:

“Þegar ég skrifa tölvupósta þá þýða þeir ekkert. Þetta eru bara orð sem ég skrifa.,, – Paris Hilton.

hildur2

4 athugasemdir

Vísindaferð!

8.9.2009

6a00d8341d7dd353ef00e5508477e68834-800wiNú fer að líða að fyrstu vísindaferð Ritvélarinnar.

Í henni verður auglýsingastofan Jónsson & Le´macks heimsótt.

Hún er til húsa við Vesturgötu 10, 101 Rvk, og þangað verður haldið föstudaginn 18. september kl. 17:00.

Veitingar verða í boði og fjöldatakmarkanir eru 25 manns.

Skráning verður hér á kommentakerfi síðunnar í næstu viku og munu meðlimir Ritvélarinnar ganga fyrir í skráningu.

Þannig að takið kvöldið frá og fylgist með!

Ritvélin


6 athugasemdir

Spjallsvæði

8.9.2009

Umræðuborð ritlistarnema hefur nú verið sett upp og er aðgengilegt hér.

Skráið ykkur nú, öll sem eitt. Endilega notið háskólanetfangið ykkar svo auðveldara sé að ganga úr skugga um að þið séuð í ritlist – ekki viljum við að hver sem er geti skráð sig og njósnað um okkar leyndustu hugðarefni. Einnig er mjög sniðugt að þið notið ykkar raunverulegu nöfn sem notendanöfn.

Engar athugasemdir

Skráning

7.9.2009

Jæja gott fólk, þá er opið fyrir skráningar í Ritvélina og verður hægt að ganga í félagið fram að 1. nóvember.

Að vera félagi í Ritvélinni veitir þér forgangsröð í vísindaferðir, afslætti á ýmsum stöðum (þegar við fáum það allt staðfest og búum til kort) og síðast en ekki síst, möguleika á birtingu í næstu útgáfu Ritvélarinnar.

Félagsgjöld eru 1500 krónur og á að leggja inn á eftirfarandi reikning:

Reikningsnúmer: 0338-26-460209
Kennitala: 460209-1020

Munið að senda kvittun á ritvelin@gmail.com ásamt því að senda póst frá/með því netfangi sem þið viljið að fari á póstlista okkar og nafni, svo við höfum nú pottþétt alla á félagalistanum.

Ef þið hafið einhverjar spurningar, endilega kommentið eða sendið póst á ritvelin@gmail.com.

-Ritvélin

2 athugasemdir