Færslur frá 8.2009

Það er komið haust!

30.8.2009

n60770246136_2646Nú er skólinn að hefjast og Ritvélin, félag ritlistarnema við Háskóla Íslands, er með mikið á prjónunum fyrir veturinn.

Þegar er búið að staðfesta vísindaferðir á auglýsingastofur, kvikmyndaframleiðslufyrirtæki og leikhús, og líktog í fyrra munum við einnig heimsækja stærstu forlögin. Við ætlum líka að reyna að heimsækja prentmiðla og fleiri fyrirtæki sem á einhvern hátt nota hið ritaða mál í starfsemi sinni.

Aðra hverja viku verða svo haldnir óformlegri hittingar á öldurhúsum þarsem nemendum gefst tækifæri á að kynnast utan skólastofunnar. Ritlistarnámið er ólíkt öðrum akademískum fögum, því verkefnin eru alfarið frá nemendum sjálfum komin og það er ekki hægt að fela sig á bakvið heimildir og fræði. Verkefni og sögur geta því oft verið mjög persónulegar og því skiptir miklu máli að traust myndist þegar um þau er rætt í skólastofunni. Það er reynsla okkar frá því í fyrra að það verður bæði auðveldara að gagnrýna og taka gagnrýni eftir því sem maður kynnist samnemendum sínum betur.

Í vikunni sem leið kom út smásagnasafnið Hestar eru tvö ár að gleyma, en það er fyrsta ársrit Ritvélarinnar. Sögurnar fimmtán sem það hefur að geyma urðu til í sagnagerðarnámskeiði síðasta vetrar og sáu nemendur sjálfir um yfirlestur, ritstjórn, umbrot og útgáfu. Leikurinn verður endurtekinn í vetur og við erum að leita að nýnemum sem hafa áhuga á að koma að ritstjórn þess með einhverjum hætti.

Einnig er laus staða nýnemafulltrúa í stjórn Ritvélarinnar og auglýsum við hér með eftir umsóknum, en þær skal senda á ritvelin@gmail.com.

Á næstunni verður stofnaður umræðuþráður þarsem ritlistarnemar geta rætt allt milli himins og jarðar, og unnið er að því að betrumbæta heimasíðuna og gera hana að vettvangi fyrir ritlistarnema að birta hugleiðingar, sögur, ljóð, gagnrýni, eða hvað sem okkur dettur í hug.

Undir lok annarrar kennsluviku verður haldið nýnemakvöld þarsem hægt verður að skrá sig í félagið. Skráningargjaldið eru litlar 1.500 krónur, og félögum í Ritvélinni gefst kostur á að kaupa hið glæsilega smásagnasafn á aðeins 1.000 krónur. Tilboðið gildir einnig fyrir nemendur í Gangvirkinu, burtséð frá því hvort þeir skrái sig í félagið eða ekki. Allur gróði af útgáfunni fer svo beint í sjóð fyrir útgáfu næsta vetrar.

Aðild að félaginu er forsenda þess að vera gjaldgengur í útgáfu næsta ársrits og félagar ganga einnig fyrir í skráningum í vísindaferðir þegar fjöldatakmarkanir eru.

Tími og staðsetning nýnemakvölds verður auglýst síðar.

Ritvélin er með síðu á Facebook og hvetjum við alla til að skrá sig þar.

Með von um góða þáttöku á komandi vetri,

Ritvélin

2 athugasemdir