Kápa og titill
14.7.2010
Kæru listfengnu ritlistarnemar,
nú er komið að keppninni um nafn og hönnun á kápu bókarinnar. Kápan skal vera B5 að stærð (176 × 250) og þurfa keppendur að senda inn bæði framhlið og bakhlið. Stærð kjalar er enn óákveðin en sigurvegari keppninnar skal hanna hann þegar þar að kemur.
Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram á framhlið kápu:
- Nafn bókar
Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram á bahlið kápu:
- Nafn bókar
- Smásagna- og ljóðasafn eftir ritlistarnemendur Háskóla Íslands
- 40 orða texti um bók
Athugið að kápuhönnuðir geta einnig komið með hugmynd að nafni og þeir skulu ákveða letur eða aðra framsetningu á nafninu. Einnig ákveða þeir letur káputextans. Kápuhönnuðir þurfa ekki að skrifa textann en ágætt er að semja eitthvað til viðmiðunar. Ef kápuhönnuður fær góða hugmynd að texta gæti vel verið að hann verði notaður.
Ef einhverjir er með snilldar hugmynd að nafni og vilja ólmir koma hugmynd sinni á framfæri, geta notað kommentakerfið eða spjallið á ritvelin.org eða spjall.ritvelin.org til þess að kápuhönnuði sem vantar nafnahugmyndir geti unnið með þær. Í sameiningu ættum við að geta búið til frábæra bók.
Skilafrestur er til 30 júlí. Hugmyndum skal skilað á ritvelin@gmail.com.
Útgáfa 2010
23.5.2010
Til hópsins sem mun búa til næstu bók Ritvélarinnar:
Margir hafa rætt við okkur í útgáfunefndinni um dómnefnd sem sem hefði það hlutverk að gera bókina að gæðagrip. Enginn úr útgáfunefndinni mun sitja í dómnefndinni. Allir hafa tækifæri til þess að fá sína sögu birta því dómnefndin mun aðeins skera út um hvort einhver verk séu ekki hæf til útgáfu. Ef allir leggja hart að sér og senda inn vel unnar lokaútgáfur sem sýna fram á mikinn metnað þarf dómnefndin ekkert að skipta sér að. Við vonumst til þess að þið getið lagt ykkur fram og hjálpað hvert öðru.
Rithringurinn mun koma saman næstkomandi þriðjudag (25.05.10). Þá munum við hittast á Háskólatorgi og hertaka hringborðin kl. 18:00. Mjög mikilvægt er að vera tilbúinn með athugasemdir um öll verkin í sínum hópi. Sögurnar skulið þið hafa útprentaðar og láta svo höfunda fá athugasemdir ykkar á pappír. Æskilegt er að prófarkalesa með stafsetningu, málfar og innihald í huga. Hóparnir eru eftirfarandi:
Hópur Tuma: Alexander, Hekla, Þorgerður Ösp og Vilhjálmur.
(Vilhjálmur mun ekki mæta í rithringinn og því þurfa ábendingar til hans að vera á rafrænu formi).
Hópur Estherar: Áslaug, Dagbjört og Sverrir, (Jón Bjarki).
Hópur Sigursteins: Bryndís, Hertha og Þorgerður Ólafsdóttir.
Hópur Gunnhildar Helgu: Bergþóra Einarsdóttir, Hildur og Trausti, (Hlín).
Hópur Höllu Míu: Birgir, Kristján og Stefanía, (Bergþóra S.).
Sögurnar voru sendar í tölvupósti.
Okkur þykir mjög leiðinlegt að þrír aðilar geti ekki verið með sökum seinagangs en ef um villu er að ræða verður viðkomandi að hafa samband við okkur sem fyrst og senda sitt verk á hópfélaga sína.
Við viljum einnig benda ykkur á að þið megið auðvitað lesa fleiri sögur ef ykkur langar. Öll aðstoð er vel þegin og mun hún bæta heildarmynd bókarinnar.
Á þriðjudaginn munum við einnig ræða um nafn á bókina og útlit kápunnar.
Ef þið eruð ekki með Word 2007 (getið ekki opnað .docx) þá bendum við ykkur á Open Office forritið sem þið getið halað niður hér: http://www.openoffice.org/
Þeir sem ekki hafa borgað félagsgjöld þurfa að gera það sem allra fyrst. Enginn sem ekki er meðlimur í nemendafélaginu fær verkið sitt birt í bókinni. Svona á að borga félagsgjöldin:
Félagsgjöld eru 1500 kr. Munið að senda líka kvittun á ritvelin@gmail.com.
Reikningur: 0338-26-460209
Kennitala: 460209-1020
Samantekt:
Til þess að fá verkið birt þarf:
- Að skrifa gott verk.
- Að lesa yfir önnur verk.
- Að mæta í rithring á HT þann 25.05.10.
- Að notfæra sér athugasemdir félaga sinna til að betrumbæta verkið.
- Að borga félagsgjöld.
- Að senda meistarverkið í lokaprófarkalestur.
Annað snemmbúið lokahóf!
7.5.2010
Nú geta ritlistarnemar fagnað próflokum í annað sinn, þrátt fyrir að prófunum sé enn ekki lokið. Kyntröllið, Óli Sindri, býður ritlistarnemum húsnæði undir drykkju að Aragötu 10. Mætið einhvern tímann í kvöld og skálið í botn, með ykkar eigin áfengi.
Mætið.
Ítrekun fyrir útgáfu
29.4.2010
Sælir rithöfundar.
Þar sem allir eru uppteknir í prófum ætlum að hafa aðeins þægilegra fyrirkomulag á hlutunum. Ef þið viljið vera með í útgáfunni þurfið þið að bara senda okkur email til að skuldbinda ykkur fyrir 1. maí. Uppkast að sögunni þarf síðan að vera komið til okkar 10. maí. Við höldum þá rithring með höfundunum 15. maí þar sem við gefum hvert öðru ábendingar og ráð og síðan skila allir fullkláraðri sögu 20. maí.
Gangi ykkur vel í prófunum,
Útgáfunefnd
Hin nýja stjórn Ritvélarinnar
23.4.2010
Ég, fyrir mitt leyti, fagna nýjum harðstjórum vor!
Formaður – Tumi Ferrer
Gjaldkeri – Þorgerður Ösp

Ritari – Hertha María
Hagsmunafulltrúi nemenda – Esther Ýr

Meðstjórnandi – Sykursteinn
Heil sé ykkur!
Staðsetning kosninga…
21.4.2010
…er fundin!
Næsti bar, kl. 20:00. Tilboð á barnum.
Vonumst til að sjá sem flesta!
-Stjórnin
Kosningar!
19.4.2010
Kæru ritlistarnemar!
Nú fer senn að líða að annarlokum og boðar þess vegna Ritvélin til kosninga næstkomandi fimmtudag þann 22. apríl! Staðsetning verður auglýst síðar. Ritlistarnámið er ennþá nýtt og þess vegna geta nemendur haft mikil áhrif á mótun námsins og stefnu. Það er undir okkur komið að gera sem mest úr náminu og upphefja það á hærri grundvöll listsköpunar. Með því að taka virkan þátt í nemendafélaginu býðst einstakt tækifæri til að efla og styrkja ritlistarnámið á einstakan hátt. Allir ritlistarnemar geta boðið sig fram og kosið svo lengi sem þeir séu á staðnum.
Listi yfir embætti Ritvélarinnar:
1. Formaður
2. Gjaldkeri
3. Ritari
4. Hagsmunafulltrúi nemenda
5. Meðstjórnandi
Frambjóðendum gefst færi á að kynna sig og að halda litla tölu áður en gengið verður til kjörs.
Einnig verður kosið um samþykki laga Ritvélarinnar, en umræða og lokaútgáfu þeirra má finna á þessum þræði á spjallinu:
http://spjall.ritvelin.org/viewtopic.php?f=6&t=46
Við vonumst til að sjá ykkur sem flest!
Kveðja,
Ritvélin
Ný bók! Efni óskast!
29.3.2010
Við hjá útgáfunefnd Ritvélarinnar erum hér með farin að auglýsa eftir efni í næstu bók. Bókin mun innihalda bæði smásögur og ljóð. Verkin mega ekki vera lengri en 3000 orð og aðeins geta þeir sem borgað hafa félagsgjöld sent inn efni. En ekki örvænta ef það hefur gleymst því Ritvélin hefur opnað aftur fyrir skráningu:
Félagsgjöld eru 1500 kr. Munið að senda líka kvittun á ritvelin@gmail.com.
Reikningur: 0338-26-460209
Kennitala: 460209-1020
Síðasti séns til að senda inn efni er 1. maí. Þá getur útgáfunefndin undirbúið útlit og uppsetningu bókarinnar en síðasti skiladagur fyrir rýningu er 15. maí. Hver höfundur borgar með sér 10.000 kr en fær í staðinn 10 bækur.
Tekið er við efni á ritvelin@gmail.com
Gangi ykkur vel,
útgáfunefnd.
Árshátíð Ritvélarinnar
15.3.2010
Árshátíð Ritvélarinnar verður haldin þann 27. mars næstkomandi á Horninu, mæting kl. 19:00. Eftir matinn verður haldið í nálægt heimahús þar sem Ritvélin býður upp á veigar og aðrar dásemdir. Hér ber að líta matseðilinn, en þetta verður hlaðborð:
- Lasagne al forno.
- Tagliatelle með skinku og sveppum í rjómasósu.
-Kalt pastasalat – ferskt grænmetissalat – hvítlauksbrauð.
Dressingar – hvítlauksolía – chilliolía.
Ýmsar tegundir af pizzum af matseðli, til dæmis með:
skinku – sveppum – pepperoni – ananas -
nautahakki – grænmeti og fl.
Hér er tengill á síðuna hjá Horninu: http://www.hornid.is/Hornid/Horni.html
Fyrir félaga Ritvélarinnar kostar þetta litlar 2500 kr. en 3500 fyrir þá sem eru ekki skráðir í félagið. Makar eru að sjálfsögðu velkomnir og borga þeir 3500 (nema þeir séu félagar, að sjálfsögðu). Drykkir eru ekki innifaldir í matnum, þó hægt sé að panta þá og borga á staðnum, en fyrir þá mjög þyrstu verður að sjálfsögðu nóg í eftirpartíinu.
Hér eru leiðbeiningar fyrir borgun:
Leggið upphæðina inn á reikning okkar gegnum heimabanka og merkið færsluna sem ‘Árshátíð‘ eða ‘Árshátíð+‘ ef þið eruð að borga fyrir maka. Munið að senda líka kvittun á ritvelin@gmail.com. Endilega einnig tilkynna komu ykkar í kommentunum hér fyrir neðan.
Reikningur: 0338-26-460209
Kennitala: 460209-1020
Við hlökkum rosalega til og vonumst til að sjá ykkur sem flest! Það er rúm fyrir u.þ.b. 35 manns og við vonum að það fyllist upp!
Vélritið vill þig!
10.3.2010
Kæru ritlistarnemar,
Okkur var rétt í þessu að berast mikilvæg skilaboð frá hinni göfugu ritstjórn Vélritsins:
—–
Sæl öll !
Vélritið fær nýtt útlit! Um er að ræða eina A4 síðu, brotna til helminga. Planið er að blaðið verði minna um sig en komi jafnframt oftar út. „Þemað“ í fyrsta blaðinu verður max 37 orða ör-skrif af einhverju tagi, hvað sem úr huganum flæðir, handskrifað eður ei.
Einnig viljum við birta myndir sem mættu þá vera meðalmanns vísifingur á breidd og hæð.
Póstfangið er það sama: velritid@gmail.com
Vonum að innhólfið fari að fyllast af örskrifum sem fyrst!
Bestu kveðjur
—–
Við hvetjum ykkur öll til að senda inn efni og það samstundis!
Kveðja,
Ritvélin



